Leikur og tækni

Heiti námskeiðs: Leikur og tækni
Braut/námsleið/kjörsvið: Kjörsvið – Upplýsingatækni og miðlun
Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið): Valnámskeið
Misseri: 4. misseri?
Stærð námskeiðs í einingum: 5
Hámarksfjöldi nemenda: Enginn
Forkröfur: Engar
Námskeiðslýsing

Þekkingar- og færnimarkmið:
Nemendur geti

  • lýst möguleikum sem felast í tölvunotkun barna í grunn- og leikskóla
  • fundið, flokkað, gagnrýnt og metið stafrænt efni ætlað börnum
  • beitt upplýsingatækni með börnum, einkum í leik og skapandi vinnu
  • sýnt tök á völdum verkfærum til að afla efnis og útbúa hljóð, skjásögur og hreyfimyndir
  • skipulagt, útfært og metið efnisgerð af nýmiðlunartoga með ungum nemendum leik- og grunnskóla
  • skipulagt listræna sköpun og leik með ýmis konar tæki og nytjahluti
  • beitt tækjum og hugbúnaði sem ætlaður er börnum og varpar ljósi á hönnun tækja, forritun og sjálfvirkni

Inntak, viðfangsefni og vinnulag:
Nemendur lesa og fjalla um greinar sem lúta að tölvunotkun barna í leik- og grunnskólum. Þeir kynnast lýsandi dæmum í starfi valinna skóla og ígrunda færar leiðir til að beita upplýsingatækni og miðlun með ungum nemendum á frjóan hátt. Fjallað er um stafrænt afþreyingar- og námsefni fyrir börn og bent á leiðir til að flokka og meta slíkt efni. Nemendur útbúa skjákynningar og sögur með hjálp valinna forrita með áherslu á efnisöflun með hjálp upplýsingatækni og listræna framsetningu hljóða, mynda og hreyfinga. Nemendur fá tilefni til að bregða á leik með nytjahluti og tæknibúnað með það fyrir augum að ýta undir skapandi hugsun og skoða tækni í daglegu umhverfi barna og fullorðinna frá óvæntu sjónarhorni. Þá er á námskeiðinu fjallað um tæknilausnir sem eru sniðnar að ungum nemendum og eiga að varpa ljósi á tæknihönnun, forritun og sjálfvirkni. Nemendur kynnast kennslu um slíkan búnað á vettvangi og fá sjálfir að spreyta sig á glímu við hann.
Námsmat: Nemendur hafa töluvert val um verkefni. Nemendur bregðast við völdum verkum annarra nemenda og ræða viðfangsefni námskeiðsins. Kennarar veitir skriflega umsögn um verkefnin og meta framlag nemenda til einkunnar.
Lesefni: Valið efni um notkun upplýsingatækni í skólastarfi, stafrænt efni handa börnum, efnisgerð og skapandi vinnu með börnum.

Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.